Erum við að leita að þér?

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn!

Stéttarfélag Vesturlands auglýsir hér með eftir áhugasömum félagsmönnum til að gegna hinum ýmsu trúnaðarstöðum fyrir félagið.

Félaginu er skipt í fimm deildir og hver þeirra hefur sérstaka stjórn. Iðnsveinadeildin hefur þriggja manna stjórn og tvo til vara. Deildir verslunar- og skrifstofufólks, Matvæla, flutninga- og þjónustu, Iðnaðar, mannvirkja- og stóriðju og Deild starfsfólks hjá ríki og sveitarfélögunum hafa fimm manna stjórnir og tvo til vara. Samtals eru þetta 33 einstaklingar. Formenn deildanna eiga sæti í aðalstjórn félagsins ásamt 6 öðrum, sem kosnir eru til tveggja ára, þrír og þrír á lista annað hvert ár.

Auk þessara trúnaðarstarfa eru trúnaðarmenn á vinnustöðum sem kosnir eru til tveggja ára og alltaf vantar okkur trúnaðarmenn á einhverja vinnustaði. Einnig þarf að manna ýmsar nefndir og ráð eins og stjórnir orlofs- og sjúkrasjóðs, fulltrúaráð Festu lífeyrirssjóðs o.fl.o.fl..

Í félaginu starfar uppstillingarnenfd sem hefur það hlutverk að koma með tillögur til stjórnarkjörs og leggja fyrir trúnaðarráðið. Nú hefur uppstillingarnefnd í raun fengið meira hlutverk, þ.e. að auglýsa eftir fólki  og halda utanum lista yfir fólk sem tilbúið er að koma til starfa fyrir félagið.

Eftirtaldir aðilar eru í uppstillingarnefnd:

Jakob Hermannsson                        gsm. 690 0617  netfang: thursaberg@gmail.com

María Hrund Guðmundsdóttir    gsm. 849 2835 netfang: majahrund@simnet.is

Magnús Már Haraldsson               gsm. 847 8394 netfang: maggimh87@gmail.com.is

Áhugasömum félagsmönnum er bent á að hafa beint samband við nefndarmenn eða senda póst á

stettvest@stettvest.is  frestur til að bjóða fram krafta sína með þessum hætti er til 31.des. 2020, eftir það fer uppsstillingarnefnd að vinna að uppstillingu.

 

Uppstillingarnefnd Stéttarfélags Vesturlands

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei