Ölfusborgir

Er 58 fermetra hús með sólstofu. Því fylgir ágætur pallur, heitur pottur og smá garður. Í húsinu eru 3 svefnherbergi og í þeim eru eitt hjónarúm og tvær kojur. Gistirými er fyrir 6-8 manns. Allur búnaður er fyrir átta.
Barnastóll og barnarúm er á staðnum.

Staðsetning og staðhættir: Í Hveragerði, sem er í göngufjarlægð frá bústaðnum, er alla þjónustu að finna og svo er líka stutt að skreppa á Selfoss sem er í ca 5 mín. akstursfjarlægð. Einnig er stutt að keyra t.d. á Stokkseyri, Eyrarbakka, Þorlákshöfn og í uppsveitir Árnessýslu þar sem margt skemmtilegt er að skoða

Helgin er alltaf leigð frá mánudegi til föstudags.

Til að bóka þarf að byrja á að skrá sig inn á mínar síður og fara í húsið og velja orlofskerfi framboð, þá koma upp þær eignir sem við eigum og þá þarf að passa að velja mánuðinn sem leigja á í og svo gengur þetta nokkuð augljóst fyrir sig.

Á sumrin er húsinu úthlutað og þá þarf einnig að nýta punkta en í vetrarleigu gildir fyrstur kemur fyrstur fær og punktar ekki dregnir frá.

Eftirfarandi reglur gilda um alla orlofskosti og eru gestir vinsamlegast beðnir um að virða þær:

  • Reykingar eru stranglega bannaðar í orlofsíbúðum og húsum Stéttarfélags Vesturlands. Það á einnig við um rafrettur.
  • Leigutaka er óheimilt að framselja leigusamninginn án samþykkis félagsins.
  • Ekki er leyfilegt að hafa gæludýr í orlofsíbúðum félagsins.
  • Helgarleiga í öllum íbúðum og sumarhúsum félagsins er 3 nætur frá föstudegi til mánudags.
  • Hafi félagsmaður bókað og greitt fyrir íbúð með meira en tveggja mánaða fyrirvara og geti svo ekki nýtt sér leiguna, þá er honum endurgreitt að fullu óski hans þess áður en 60 dagar eru í leigudag.
  • Ef minna en 60 dagar eru að leigudegi, er íbúðin losuð á vefnum og auglýst á heimasíðu félgasins. Náist að leigja húsið/íbúðina á næstu 50 dögum, fæst endurgreitt að fullu. Eftir 50 daga, þ.e. þegar minna en 10 dagar eru í útleigu fæst ekkert endurgreitt.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei