Er 64 fermetra hús sem byggt var árið 2003. Húsið stendur örlítið innar á vinstri hönd við Kiðárskóg en númer 10. Því fylgir ágætur pallur sem er lokaður allan hringinn, heitur pottur og lítið gestahús sem er ekki einangrað en með rafmagnsofni.
Þrjú svefnherbergi eru í húsinu í þeim er eitt hjónarúm og 2 kojur með tvíbreiðri neðri koju og því gistirými fyrir 8. Allur búnaður er fyrir átta.
Í húsinu er uppþvottavél, þvottavél, barnastóll og barnarúm.
Húsafell er dásamleg náttúruperla þar sem hægt er að finna skemmtilegar gönguleiðir, skella sér í sund eða bara njóta ferska loftsins og kyrrðarinnar.
Aðeins er hægt að bóka helgarleigu yfir vetrartímann frá föstudegi til mánudags. Á sumartíma er húsið leigt frá fimmtudegi til miðvikudags.
Til að bóka þarf að byrja á að skrá sig inn á mínar síður og fara í húsið og velja orlofskerfi framboð, þá koma upp þær eignir sem við eigum og þá þarf að passa að velja mánuðinn sem leigja á í og svo gengur þetta nokkuð augljóst fyrir sig.
Á sumrin er húsinu úthlutað og þá þarf einnig að nýta punkta en í vetrarleigu gildir fyrstur kemur fyrstur fær og punktar ekki dregnir frá.
Upplýsingar og umgengnisreglur
Leigutökum ber að ganga vel um og þrífa húsið fyrir brottför, henda rusli í þar til merkta ruslagáma og gæta þess að hver hlutur sé á sínum stað. Leigutakar þurfa að hafa með sér sængurfatnað og handklæði en umsjónarmaður sér um að tuskur og diskaþurrkur séu til staðar ásamt hreinlætisvörum.
Verði misbrestur á því að húsið sé þrifin fyrir brottför, áskilur félagið sér rétt til að láta umsjónarmann bæta þar um á kostnað leigjenda.
Gaskútur er við grillið í bústaðnum og þurfa leigjendur að sjá til þess að um leið og hann tæmist sé gas sótt í þjónustumiðstöðina og gefið upp að það sé fyrir Stéttarfélag Vesturlands, þannig að alltaf sé gas til staðar við brottför. Leigutökum ber að skilja við grillið hreint og þrifið og ganga frá því inn í geymslu við húsið fyrir brottför.
Gestir eru beðnir að sýna tillitssemi varðandi umferð um svæðið og ónáða ekki aðra gesti með óþarfa háreysti eða skarkala.
Reykingar eru bannaðar í bústaðnum og á það einnig við um rafrettur.
Sé einhverju ábótavant sem gestir vilja koma á framfæri eru þeir beðnir að hafa samband við Stéttarfélag Vesturlands 430-0430/stettvest@stettvest.is, eða skrifa miða til umsjónarmanns. Í neyðartilfellum má hafa samband við Sigríði Bjarnadóttur í síma 892-3468, en hún annast umsjón með húsinu.
Lykilorð á internetið er að finna í húsinu, vinsamlegast takið router ekki úr sambandi
Gestir eru minntir á að skilja lykla eftir í lyklahúsi við útidyr við brottför.
Eftirfarandi reglur gilda um alla orlofskosti og eru gestir vinsamlegast beðnir um að virða þær:
- Reykingar eru stranglega bannaðar í orlofsíbúðum og húsum Stéttarfélags Vesturlands. Það á einnig við um rafrettur.
- Leigutaka er óheimilt að framselja leigusamninginn án samþykkis félagsins.
- Ekki er leyfilegt að hafa gæludýr í orlofsíbúðum félagsins fyrir utan Kiðarskóg 1.
- Helgarleiga í öllum íbúðum og sumarhúsum félagsins er 3 nætur frá föstudegi til mánudags.
- Hafi félagsmaður bókað og greitt fyrir íbúð með meira en tveggja mánaða fyrirvara og geti svo ekki nýtt sér leiguna, þá er honum endurgreitt að fullu óski hans þess áður en 60 dagar eru í leigudag.
- Ef minna en 60 dagar eru að leigudegi, er íbúðin losuð á vefnum og auglýst á heimasíðu félgasins. Náist að leigja húsið/íbúðina á næstu 50 dögum, fæst endurgreitt að fullu. Eftir 50 daga, þ.e. þegar minna en 10 dagar eru í útleigu fæst ekkert endurgreitt.