Hvernig á að sækja um sjúkradagpeninga
Félagsmenn eiga rétt á greiðslu sjúkradagpeninga vegna heilsufars þegar veikindaréttur hjá vinnuveitanda er fullnýttur.
Til þess að eiga rétt þarf að hafa greitt í 6 mánuði samfleytt. Ef þú hefur greitt í annað félag innan ASÍ og öðlast rétt þar þá fylgir hann þér er þú hefur greitt í einn mánuð til Stéttarfélags Vesturlands.
Umsóknarferlið:
- Sjúkradagpeningavottorð: Til þess að fá sjúkradagpeninga greidda frá okkur þarftu að fá sérstakt sjúkradagpeningavottorð
(athugið að það er ekki það sama og veikindavottorð til atvinnurekanda. Félaginu er óheimilt að afgreiða sjúkradagpeninga án Sjúkradagpeningavottorðs)
– Mikilvægt er að passa upp á dagsetningar á vottorðinu. Það er annaðhvort hægt að fá tímabundið eða ótímabundið sjúkradagpeningavottorð. Félaginu er einungis heimilt að greiða sjúkradagpeninga fyrir það tímabil sem kemur fram á vottorði. Biðja þarf lækni að hafa vottorð allavegana frá og með deginum sem þú verður launalaus og klárar veikindarétt þinn hjá atvinnurekanda. Vottorðið má ekki vera eldra en eins mánaðar.
- Vottorð launagreiðanda Þetta vottorð þarf atvinnurekandi eða yfirmaður þinn að fylla út. Þú getur sent honum þetta í tölvupósti og hann sendir þér útfyllt til baka eða prentað þetta út og farið með til hans.
- Upplýsingar um Skattkort
Ef þú ert í vafa eða vantar aðstoð við að afla ofangreindra ganga getur þú haft samband við okkur: stettvest@stettvest.is S: 430-0430
Þegar þú hefur safnað ofangreindum gögnum er kominn tími til að sækja um rafrænt inn á Mínum síðum
Skilafrestur gagna er 25. hvers mánaðar. Umsókn og öll gögn þurfa að hafa borist okkur þá
Greitt er síðasta virka dag hvers mánaðar. Reiknað er 80% af meðaltali launa síðastliðna 6 mánuði.
Hægt er að sækja einnig um, samhliða sjúkradagpeningum, hjá Sjúkratryggingum Íslands inn á mínum síðum inn á þeirra vef www.sjukra.is (Sjúkradagpeningavottorð og vinnuveitendavottorð þarf einnig að fylgja þeirri umsókn)
Vinsamlegast athugið að öll gögn sem send eru bréfleiðis eða á stettvest@stettvest.is verða ekki tekin til greina nema að umsókn liggji fyrir og starfsmaður hafi vitneskju um að einhver gögn eigi að berast á annan máta en í gegnum Mínar síður.
