Sveitamennt

Kynningamyndband á íslensku má nálgast hér
Information in English are here

Sveitamennt er starfsmenntunarsjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands.

Sveitamennt tók formlega til starfa 1. janúar 2007 og byggir á gr. 13.4.3. um starfsmenntunarsjóð í kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga (LN) og Starfsgreinasambands Íslands (SGS).

Markmið sjóðsins er annars vegar að auka möguleika sveitarfélaga og stofnana þeirra á að þróa starfssvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma og efla starfsmenntun starfsmanna með það fyrir augum að þeir verði færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni.

Reglur sjóðsins má sjá hér

Einstaklingar sækja um styrki í gegnum Mínar síður

Sveitarfélög sækja um styrki til stjórnar Sveitamenntar með að senda umsókn þar sem koma fram helstu upplýsingar vegna viðkomandi fræðsluverkefnis.

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei