Landsmennt, starfsmenntun Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni

Landsmennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni. Aðildarfélögin eru 21 og er þar um að ræða stéttarfélög innan Starfsgreinasambands Íslands.
Helstu verkefni Landsmenntar eru að sinna stuðningsverkefnum og þróunar-og hvatningaraðgerðum í starfsmenntun. Sjóðnum er ætlað að styrkja rekstur námskeiða og stuðla að nýjungum í námsefnisgerð ásamt því að veita einstaklingum, verkalýðsfélögum og fyrirtækjum beina styrki vegna sí-og endurmenntunar.

Reglur sjóðsins má sjá hér

Einstaklingar sækja um styrki í gegnum Mínar síður

Fyrirtæki, stéttarfélög og eða fræðsluaðilar sækja um styrki til stjórnar Landsmenntar með því að senda umsókn þar sem fram koma helstu upplýsingar vegna viðkomandi fræðsluverkefnis inn á umsóknarvefgáttina www.attin.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei