Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins taka höndum saman gegn vinnumansali

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu í kjölfar ráðstefnu gegn vinnumansali sem var haldin í Hörpu í gær, 26. september. Þar lýsa samtökin yfir þungum áhyggjum af stöðunni en ljóst er af þeim málum sem komið hafa upp á yfirborðið undanfarið að vinnumansal þrífst í íslensku samfélagi. Þau finna til sinnar ábyrgðar gagnvart þeirri stöðu sem nú er komin upp og vilja gera allt sem er á þeirra valdi að vinna gegn vinnumansali. Auk þess er vilji ASÍ og SA að stjórnvöld axli ábyrgð og kalla eftir þríðhliða samstarfi sem þau segja sérlega mikilvægt í baráttunni gegn brotastarfsemi og að ná því markmiði að afmá vinnumannsal í íslensku atvinnulífi.

Vilji ASÍ og SA er meðal annars að tryggð verði aðgerðaráætlun sem tekur sérstaklega til vinnumansals, þá sérstaklega viðbragðs- og eftirlitskerfis enda til lítils að sinna eftirliti ef niðurstaða fyrir þolendur er jafn slæm eða verri en var meðan á vinnumansalinu stóð. Áhyggjur ASÍ og SA lúta ekki síst að stöðu erlendra ríkisborgara sem hafa flutt um langan veg í leit að betra lífi og eru því sérstaklega berskjaldaðir fyrir vinnumansali. Koma þarf upp sérstöku ferli til að bera kennsl á þolendur vinnumansals og passa að þeim sé tryggð nauðsynleg félagsleg úrræði. Til þess þarf að auka þekkingu á málaflokknum í réttarkerfinu og forgangsraða fræðslu enda eru slík mál alla jafna flókin og viðkvæm bæði rannsókn og saksókn.

Lesa má yfirlýsinguna í heild hér að neðan.

Sameiginleg yfirlýsing ASÍ og SA í baráttunni gegn vinnumansali

Undanfarin misseri hafa komið upp á yfirborðið nokkur mál á íslenskum vinnumarkaði sem sýna að vinnumansal þrífst í íslensku samfélagi. ASÍ og SA lýsa sameiginlega yfir áhyggjum sínum af því að slíkt geti þrifist hér á landi og finna til ábyrgðar sinnar um að gera allt sem er á þeirra valdi til að vinna gegn vinnumansali.

Íslenskur vinnumarkaður er að mestu leyti vel skipulagður enda hafa aðilar vinnumarkaðarins viðhaft mikið og virkt samtal um allt það sem lýtur að sameiginlegum hagsmunum. Stjórnvöld verða svo eðli málsins samkvæmt
einnig að axla ábyrgð á samstarfinu sem þar með verður þríhliða sem er sérlega mikilvægt hvað varðar baráttuna gegn brotastarfsemi og markmiðið um að hér á landi þrífist ekki vinnumansal.

Vinnumansal er að mati ASÍ og SA ólíðandi og nauðsynlegt að allt sé skoðað með það að markmiði að upprætaslíka háttsemi.

Áhyggjur ASÍ og SA lúta ekki síst að stöðu erlendra ríkisborgara á vinnumarkaði enda sýna dæmin bæði hérlendis og erlendis að einstaklingar í viðkvæmri stöðu sem hafa lagt mikið á sig og flutt um langan veg í leit að betra lífi eru sérstaklega berskjaldaðir fyrir vinnumansali. Sameiginlegir hagsmunir allra eru að tryggja heilbrigðan vinnumarkað sem tekur vel á móti því fólki sem hingað kemur til að vinna.

Með vísan í allt framangreint skora ASÍ og SA á stjórnvöld að grípa svo fljótt sem verða megi til eftirfarandi almennra aðgerða:

  • Tryggð verði aðgerðaáætlun sem tekur sérstaklega til vinnumansals, þá sérstaklega viðbragðs- og
    eftirlitskerfis enda til lítils að sinna eftirliti ef niðurstaða fyrir þolendur er jafn slæm eða verri en var
    meðan á vinnumansalinu stóð.
  • Þolendum vinnumansals verði tryggð nauðsynleg félagsleg úrræði, eftir atvikum.
  • Koma þarf upp sérstöku ferli til að bera kennsl á þolendur vinnumansals.
  • Tryggja þarf fullnægjandi þekkingu á málaflokknum í réttarkerfinu og forgangsraða fræðslunni til að
    geta betur sinnt málaflokknum. Enda eru slík mál alla jafna flókin og viðkvæm bæði í rannsókn og saksókn.
  • Lög um atvinnuréttindi útlendinga verði endurskoðuð og eftir atvikum lögum um útlendinga í því augnamiði að takmarka líkur á vinnumansali.

ASÍ og SA lýsa því yfir að auk þess að vinna sameiginlega að framgangi framangreinds munu þau vinna að
markvissum aðgerðum á borð við;

  • Hvetja fyrirtæki til þess að taka ábyrgð á virðiskeðjunni í rekstri sínum. Aðilar munu m.a. útbúa
    fræðsluefni um hvernig best sé að gera það.
  • Búa til fræðsluefni um einkenni vinnumansals í samstarfi við önnur samtök fyrir almenning og
    atvinnurekendur.

26. september 2024
Harpa, Rvk

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei