Skrifað var undir nýjan kjarasmaning við Elkem Ísland nýverið. Umræður gengu í þónokkurn tíma og gekk erfiðlega að ná saman kjarasamningi á tímabili en hefur nú tekist. Samningurinn gildir í fjögur ár og er fyrsta árið í anda þess sem samið var um á hinum almenna vinnumarkaði en mun taka svo breytingum með tengingu við launavísitölu líkt og kjarasmaningar stóriðjunnar á Grundartanga hafa gert frá árinu 2015. Orlofs- og desemberuppbót mun hækka úr 291.078 kr. í 308.766kr. og nema því samtals 617.532 krónum.
Lægsti taxti ofngæslumanna mun nema 471.050 kr. og dagmanna 481.038 kr. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2025 og er afturvirkur um 2 mánuði þannig að starfsmenn munu fá afturvirkni sem nemur í kringum 100.000 kr. en almennt eru laun verkamanna á vöktum, þegar allt er tekið til, að hækka um rúmar 50.000 kr. á mánuði.
Samningurinn verður kynntur í Elkem á fimmtudaginn og hefst kosning þann dag klukkan 12. Kosningin verður rafræn og mun standa yfir til þriðjudagsins 18. mars klukkan 12:00. Hér má nálgast samninginn.