Ertu á leið í frí?

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands styður góða afþreyingu í sumarfríi síns félagsfólks. Á skrifstofu félagsins að Sæunnargötu 2a í Borgarnesi getur félagsfólk nú nálgast spilastokk, buff, mikado og kúluspil sem er úrvals afþreying fyrir sumarfrí með góðum vinum og fjölskyldu. Auk þess eru margnota innkaupapokar, gleraugnaklútar og pennar mikið þarfaþing þegar pússa á sólgleraugun, versla fyrir fríið og skrifa niður stiginn í góðri Kínaskák. Hvetjum við félagsfólk til að renna við á leið í fríið og næla sér í afþreyingarvarning og fá sólskinsbros í leiðinni frá þjónustufulltrúum StéttVest.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei