Könnun um orlofskosti

Stéttarfélag VesturlandsFréttir

Nú hefur verið opnað fyrir könnun til félagsmanna um orlofskosti félagsins. Er könnunin gerð í þeim tilgangi að kanna hug félagsmanna þegar kemur að orlofseignum. Þegar hefur verið ráðist í ákveðnar breytingar á orlofseignum, meðal annars þegar sumarhús félagsins var selt í Ölfusborgum og þegar Kiðárskógur 10 í Húsafelli var tekinn til gagngerðra endurbóta. Nú vill stjórn orlofssjóðs ásamt stjórn StéttVest fá að heyra hug hins almenna félagsmanns til orlofskosta félagsins. Könnunin telur 11 spurningar og er aðgengileg á íslensku, ensku og pólsku. Hvetjum við allt félagsfólk til að taka þátt svo megi móta stefnu fyrir orlofssjóð til næstu ára, þitt svar skiptir okkur miklu máli.  Könnunin er aðgengileg inn á Mínum síðum og hefur verið sendur póstur til allra þeirra sem eru með gilt netfang í félagakerfinu.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei