Baráttufundur Stéttarfélags Vesturlands og Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu verður haldinn að venju í Hjálmakletti og byrjar fundurinn klukkan 14:00. Yfirskrift fundarins í ár er Styrkur okkar er velferð allra. Dagskrá er sem hér segir:
Ávarp – Silja Eyrún Steingrímsdóttir formaður Stéttarfélags Vesturlands
Leikfélagið Kopar frá Menntaskóla Borgarfjarðar sýnir atriði úr Gosa
Hátíðarræða dagsins – Heiðar Lind Hansson sagnfræðingur
Gleðigjafarnir kór eldriborgara – stjórnandi Hólmfríður Friðjónsdóttir.
Lalli Töframaður mætir með töfrabrögð fyrir börn á öllum aldri.
Fjöldasöngur – Alþjóðasöngur verkalýðsins – Internationalinn.
Kynnir – Ólöf María Brynjarsdóttir verkefnastjóri hjá Stéttarfélagi Vesturlands.
Kaffiveitingar í umsjá 9. bekkjar Grunnskólans í Borgarnesi að fundi loknum.
Bíósýning í Óðali fyrir yngstu kynslóðina klukkan 12:00 – popp og svali í boði.

