Baráttufundur Stéttarfélags Vesturlands, Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu og Sameykis verður haldinn að venju í Dalabúð og byrjar fundurinn klukkan 13:00. Yfirskrift fundarins í ár er Styrkur okkar er velferð allra. Dagskrá er sem hér segir:
Lalli töframaður galdrar fyrir börn á öllum aldri.
Hátíðarræða dagsins – Arna Jakobína Björnsdóttir fráfarandi formaður Kjalar
Sönghópurinn Hljómbrot flytur ómþýða tóna
Kynnir: Sigrún Reynisdóttir varaformaður Stéttarfélag Vesturlands
Kaffiveitingar að fundi loknum.

