Ragga nagli heldur sinn vinsæla fyrirlestur Bestar á breytó — fræðsla um mataræði, hreyfingu og bætiefni fyrir þennan nýja kafla í lífinu.
• Hvernig hreyfing og næring er áhrifaríkust á breytó
• Fitutap og vöðvabygging á breytingaskeiði
• Áhrif hormónabreytinga á líkamssamsetningu
• Næring fyrir og eftir æfingar
• Bætiefni fyrir konur
Fida frá GeoSilica kynnir kísilsteinefni og vörur fyrirtækisins. GeoSilica er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem framleiðir kísilsteinefni úr jarðhitavatni. Vörurnar eru allar í vökvaformi og án aukaefna.
Hægt verður að versla vörur á staðnum.
Í lokin gefst gestum tækifæri til að spyrja spurninga og fá ráðgjöf.
📅 11. nóvember 2026
⏱️ Kl. 18:00
📍 Alþýðuhúsinu, Sæunnargötu 2a – Borgarnesi
☕ Léttar veitingar í boði
👏 Viðburðurinn er í boði Stéttarfélags Vesturlands.
Skrá verður þátttöku hér á þessum hlekk. Pláss er takmarkað, fyrstar koma fyrstar fá.

