Íslenskt skattfé styðji ekki brot gegn réttindum launafólks

Stéttarfélag VesturlandsFréttir

LÍV og VR vekja athygli á viðskiptum íslenska ríkisins við Amazon og dótturfélag þess, Amazon Web Services (AWS), í opnu bréfi til ríkisstjórnar Íslands sem birt var í dag. LÍV og VR kalla eftir því að virðing fyrir grundvallarréttindum launafólks verði skýr forsenda opinberra innkaupa.

Framganga Amazon gagnvart starfsfólki og stéttarfélögum hefur ítrekað sætt gagnrýni alþjóða samtaka launafólks. Þann 19. nóvember birtu alþjóðasamtökin UNI Global Union, sem LÍV og VR eiga aðild að, opið bréf, undirritað af leiðtogum 32 samtaka launafólks frá 19 löndum, þar sem stjórnvöld eru hvött til að endurskoða opinber viðskipti við Amazon vegna brota á réttindum launafólks.

Stafrænt Ísland nýtir þjónustu AWS við rekstur Ísland.is og gagnavinnsla og gagnagrunnar fara að miklu leyti fram í skýjaþjónustu Amazon á Írlandi og í Svíþjóð.

Í opna bréfinu eru settar fram þrjár meginkröfur til íslenskra stjórnvalda:

  1. Að gerð verði heildstæð og gagnsæ úttekt á opinberum viðskiptum við Amazon og AWS.
  2. Að virðing fyrir félagafrelsi, rétti til kjarasamninga og öðrum grundvallarréttindum launafólks verði skýr forsenda opinberra samninga.
  3. Að tryggt verði virkt eftirlit og raunhæfar afleiðingar þegar fyrirtæki brjóta gegn þessum réttindum.

Í bréfinu er jafnframt bent á að íslensk lög um opinber innkaup heimili, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, útilokun fyrirtækja frá útboðum vegna brota gegn réttindum launafólks.

Opinberir fjármunir eiga að endurspegla þau gildi sem íslenskt samfélag byggir á. Íslenskt skattfé á ekki að styðja brot gegn félagafrelsi og rétti launafólks til kjarasamninga.

Lesa opna bréfið í heild sinni

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei