Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,54% milli mánaða í nóvember og ársverðbólga hjaðnaði úr 5,9% í 5,8%, að því er fram kemur á vef Alþýðusambands Íslands. Þar kemur fram að lækkun flugfargjalda til útlanda hafi vegið þyngst, en húsnæðiskostnaður og verð á ökutækjum og eldsneyti hafi hins vegar hækkað á móti.
Verðlag hefur hækkað hægar síðustu mánuði. Hækkun vísitölunnar síðustu þrjá mánuði jafngildir 1,2% á ársgrundvelli og 3,6% síðustu sex mánuði. Tölurnar geta þó sveiflast vegna árstíðabundinna þátta, meðal annars flugfargjalda.
Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 21,8% og höfðu 0,59 prósentustiga áhrif til lækkunar á vísitölunni. Föt og skór lækkuðu um 3,4%, húsbúnaður og heimilistæki um 1% og matur og óáfengir drykkir um 0,25%.
Lækkun matvöruverðs kemur í kjölfar hækkana í haust. Verðlagseftirlit ASÍ hefur bent á að hækkanir á kjöti og mjólkurvörum hafi vegið á móti lækkunum á innfluttum vörum. Verðlagsnefnd búvara hefur ákveðið að halda heildsöluverði mjólkurvara óbreyttu í átta mánuði. Það kann að draga úr þrýstingi til verðhækkana, en tryggir ekki óbreytt verð í verslunum.
Húsnæði, vatn og orka vógu þyngst til hækkunar vísitölunnar, eða um 0,14 prósentustig. Eldsneytisverð hækkaði einnig áfram. Dísilolía hækkaði um 2,81% og bensín um 0,88%.
Ársverðbólga án húsnæðisliðar mælist 5,8%, það sama og heildarvísitalan. Í nóvember í fyrra voru samsvarandi tölur 2,7% og 3,7%. Verðhækkanir utan húsnæðisliðarins hafa því aukist verulega frá því í fyrra.
Hjöðnun verðbólgunnar í nóvember skýrist að hluta af samanburði við nóvember í fyrra. Í desember fellur hins vegar 1,15% hækkun frá desember 2025 úr samanburðinum. Verði hækkunin minni nú gæti ársverðbólga því hjaðnað áfram.

