Tímabundið skrifstofustarf í Borgarnesi
Stéttarfélagi Vesturlands vantar sem fyrst starfsmann á skrifstofu félagsins í Borgarnesi.
Um er að ræða fullt starf í sex mánuði.
Helstu verkefni:
- Félags-, fjárhags- og viðskiptamannabókhald.
- Ýmis konar afgreiðslustörf.
- Símsvörun.
Æskilegir kostir eru góð almenn undirstöðumenntun, bókhaldskunnátta – helst þekking á DK – hugbúnaði, hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
Nánari upplýsingar veita formaður félagsins, netfang: signy@stettvest.is og skrifstofustjóri, netfang: silja@stettvest.is. Síminn er 430 0 430 eða 894-9804 hjá formanni.
Umsóknum skal skilað fyrir þriðjudaginn 15.maí á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands, Sæunnargötu 2 a, 310 Borgarnes.