Lokið hefur verið við gerð kjarasamnings vegna Elkem Ísland ehf. fyrir hönd félagsmanna í Stéttarfélagi Vesturlands.
Samningurinn fer nú í kynningu og atkvæðagreiðslu á næstu dögum.
Kjarasamningurinn er á milli Samtaka atvinnulífsins annars vegar og Félags iðn og tækingreina, Rafiðnaðarsambands Íslands, Stéttarfélags Vesturlands, Verkalýðsfélags Akraness og VR hinsvegar.