Þegar unnið er á skipulögðum vöktum í ferðaþjónustunni þarf að tilgreina upphaf vaktar t.d. kl. 15:00 og síðan hvenær henni ljúki t.d. kl. 23:00. Hafi vaktin ekki tilgreindan endatíma er hún ekki fyrirfram skipulögð. Þurfi að lengja skipulagða vakt vegna t.d. tilfallandi verkefna, þarf að greiða sérstaklega fyrir lenginguna, það getur verið yfirvinna á yfirvinnutíma eða dagvinna á dagvinnutíma. Sem dæmi: starfsmaður átti að ljúka vakt kl. 15:00 en er beðinn að vera til kl. 16:00 þá er greiddur auka dagvinnutími, hafi starfsmaður ekki fyllt vinnuskylduna 173.33.
Ef launagreiðandi getur ekki skipulagt vaktir þarf að greiða eftir klukkunni dagvinnu á dagvinnutíma og yfirvinnu á yfirvinnutíma.
Hér á eftir fara nokkur ákvæði sem þarf að hafa í huga.
Hvaða samningar gilda í ferðaþjónustunni?
Kjarasamningur SGS og SA vegna vinnu starfsfólks í veitinga- og gististöðum og hliðstæðri starfsemi er samningur um lágmarkskjör, lögbrot er að greiða lakar.
Að gefnu tilefni vill félagið benda félagsmönnum sem vinna á gististöðum og veitingahúsum á nokkur atriði:
• Þeir sem verða 16 og 17 ára á árinu eiga strax að fá greitt miðað við 16 og 17 ára taxta, en hjá 18 og eldri er miðað við afmælisdaginn.
• 22 ára lífaldur jafngildir starfsaldri eftir eitt ár.
•Vaktir skulu skipulagðar og kynntar með viku fyrirvara, meginreglan er að þær gildi fyrir 4 vikur í senn. Vaktir skulu hafa tilgreindan upphafs og endatíma.
• Þegar skipulögð vakt, lengist vegna ófyrirséðra atvika, skal greiða það sem er umfram skráða vakt, með dagvinnu- eða yfirvinnutaxta eftir því sem við á.
• Óheimilt er að greiða vaktaálag ef ekki ekki er unnið eftir fyrirfram skipulögðum vöktum, þá skal greiða dagvinnu á dagvinnutíma og yfirvinnu á yfirvinnutíma.
• Ekki má greiða lægri launaflokk í vaktavinnu er lf. 5. Í tímavinnu má gr. samkvæmt lf. 2
• Í vaktavinnu greiðist álag á þann hluta 40 stunda vinnuviku sem fellur utan dagvinnutímabils:
o 33% álag á tímabilinu kl. 17:00 – 00:00 mánudag til föstudaga
o 45% álag á tímabilinu kl. 00:00 – 08:00 alla daga svo og laugardaga og sunnudaga.
o 90% álag á stórhátíaðrdögum og vetrarfrí í samræmi við skil á dagvinnuskyldu
•Starfsmaður skal fá greitt fyrir skipulagða vakt til enda, þó honum sé boðið að fara heim vegna verkefnaskorts. •
Ef ekki er unnið á skipulögðum vöktum, skal greiða dagvinnu á dagvinnutíma og yfirvinnu á yfirvinnutíma.
• Neysluhlé í vaktavinnu skulu vera sem svarar 5 mín. fyrir hvern unninn klukkutíma og skiptast eftir samkomulagi starfsmanna og stjórnanda.
• Óheimilt er að hafa orlof innifalið í launataxta.
• Jafnaðarkaup er ekki til í kjarasamningum.
• Að lágmarki skal borga 4 klst. í útkalli.
• Skoðaðu vel og geymdu alla þína launaseðla.
• Skrifaðu niður vinnutíma þinn ef þú hefur ekki aðgang að vaktatöflu, eða þú telur að tímaskrift sé röng.
Rétt er að benda á að í kjarasamningunum hefur verið samið um fyrirkomulag bakvakta. Félagsmenn eru hvattir til að hafa samband við skrifstofuna ef þeir telja að á sér sé brotið.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofum félagsins, í síma 430 0430 . Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á stettvest@stettvest.is.
ATHUGIÐ! Öll mál sem koma til félagsins eru trúnaðarmál. Innheimtumál verða þó alltaf að vera í nafni starfsmanns.
Hægt er að finna kjarasamningin í heild sinni á vef SGS: