Ársfundur Alþýðusambands Íslands 2016
Fulltrúakjör
Samkv. lögum Stéttarfélags Vesturlands skal viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við val fulltrúa á ársfund ASÍ. Félagið á rétt til að senda 3 fulltrúa á fundinn, sem fram fer á Hilton Nordica hóteli í Reykjavík dagana 26., 27. og 28. okt. 2016.
Framboðslistum, þar sem tilgreindir eru 2 aðalfulltrúar frá SGS-deildunum og 1 frá LÍV-deild og jafnmargir varafulltrúar, ásamt tilskyldum fjölda meðmæla fullgildra félagsmanna, skal skila á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands Sæunnargötu 2a, Borgarnesi, stílað á formann kjörstjórnar, Guðrúnu Helgu Andrésdóttur, fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 28.sept. 2016.
Komi ekki fram annar listi en listi trúnaðarráðs verður sá listi sjálfkjörinn.
Borgarnesi, 14. sept. 2016
Stéttarfélag Vesturlands