Stjórn Stéttarfélags Vesturlands ákvað á stjórnarfundi þriðjudaginn 28. janúar sl. að senda eftirfarandi áskorun til sveitarstjórna á starfssvæði sínu um opinber útboð og innkaup:
„Stjórn Stéttarfélags Vesturlands skorar á sveitarstjórnirnar á starfssvæði sínu að styðja við samstarf aðila vinnumarkaðarins um átak gegn svartri atvinnustarfsemi. Mikilvægt er leggjast gegn hvers kyns gerviverktöku, t.d. í byggingariðnaði, þjónustutengdri mannvirkjagerð og veitingastarfsemi. Auka þarf eftirlit með starfsemi og skattskilum þjónustuveitenda og starfsmanna þeirra. Gera þarf átak á sviði útboðsmála, sem miðar að því að koma í veg fyrir undirboð, sem byggi á svonefndu kennitöluflakki eða á því að starfskjör starfsmanna viðkomandi verktaka, uppfylli ekki lög og kjarasamninga. Stjórn Stéttarfélags Vesturlands telur að leikreglur sem miða að þessu marki séu sjálfsagðar í opinberum innkaupum, óháð fjárhæðum þeirra eða hvort í hlut eiga ríkið eða sveitarfélögin“.
Ekki þarf að orðlengja um nauðsyn þess að öll viðskipti hvort sem þau eru lítil eða stór, þurfa að lúta settum leikreglum samfélagsins og það er á allra ábyrgð að mati félagsins, að gæta þess að svo sé.