Stjórnarkjör 2018
Samkvæmt lögum Stéttarfélags Vesturlands ber að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar. Þetta ár ber að kjósa í stjórn sem hér segir:
Til 2ja ára: varaformann, vararitara og 2. meðstjórnanda.
Framboðslistum til stjórnarkjörs í Stéttarfélagi Vesturlands árið 2018, ásamt meðmælum a.m.k. 30 fullgildra félagsmanna, ber að skila á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands, Sæunnargötu 2a Borgarnesi, beint til formanns kjörstjórnar, Guðrúnar Helgu Andrésdóttur, fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 13. mars. 2018.
Hvert það framboð er gilt sem fram kemur innan þess tíma og hefur skriflegt samþykki þeirra sem framboðslistann skipa.
Trúnaðarráð Stéttarfélags Vesturlands hefur ákveðið að leggja fram eftirfarandi lista vegna stjórnarkjörs 2018.
Komi ekki fram fleiri listar teljast þeir sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir:
Varaform.: Sigrún Reynisdóttir, Kveldúlfsgötu 20, 310 Borgarnesi, til 2ja ára
Vararitari: Þuríður Jóney Sigurðardóttir, Sunnubraut 3b, 370 Búðardal, til 2ja ára
2. meðstj.: Eiríkur Þór Theódórsson, Sóltúni 5 a, 311 Hvanneyri, til 2ja ára
Borgarnesi, 27.feb. 2018
Kjörstjórn Stéttarfélags Vesturlands