Ársfundur Festu lífeyrissjóðs verður haldinn
mánudaginn 7. maí nk. á Grand Hótel, Sigtúni,
Reykjavík og hefjast fundarstörf kl. 18:00.
Félagið á rétt á að senda 4 atkvæðisbæra fulltrúa til
fundarins og þarf að hafa aðra fjóra félaga tiltæka til vara.
Félagið auglýsir hér með eftir framboðum
til þess að fylla þessi sæti.
Framboðum þarf að skila á skrifstofu Stéttarfélags
Vesturlands Sæunnargötu 2a fyrir 21. apríl.
Stjórn Stéttarfélags Vesturlands