Félagsfundur Stéttarfélags Vesturlands verður í Alþýðuhúsinu, Sæunnargötu 2a, Borgarnesi miðvikudaginn 11.des kl 19:00
- Breytingar á 20.gr laga félagsins
- önnur mál
Fundinum lýkur með borðhaldi
Opinn fundur trúnaðarráðs hefst kl 20:00
Dagskrá:
- Kosning þriggja manna uppstillingarnefndar
- Bótareglur sjúkrasjóðs – breyttar fjárhæðir
- Húsnæði félagsins, tillaga að breytingum
- Staðan í þeim kjaraviðræðum sem ólokið er
- Önnur mál
Félagar sýnum samstöðu og tökum þátt í störfum félagsins!
Á aðalfundi Stéttarfélags Vesturlands 30. apríl sl. voru gerðar breytingar á lögum félagsins. Í 20. grein er fjallað um stjórnarkjör. Lögmaður ASÍ og laganefnd hafa gert athugasemdir við orðalag og hefur lögmaðurinn komið með tillögu að skýrara orðalagi. Hér á síðunni er breytingin eins og hún var samþykkt sl. vor og er feitletrað í ramma það sem lögmaðurinn leggur til að felt verði út, þ.e. 6. málsgrein. Hann leggur síðan til þetta orðalag hér sem er þá breyting á 6. málsgrein og síðan ný 8. málsgrein. Báðar greinarnar eru í ramma í textanum og breytingarnar eru rauðar.
Til að lagabreytingar öðlist gildi þá þurf 2/3 hlutar greiddra atkvæða að vera meðmælt tillögunni og síðan þarf laganefnd og miðstjórn ASÍ að staðfesta breytingarnar.
20.gr.6 málsgrein dregin til baka
Breytingar á 6. og 8. málsgr.20 gr. laga í samráði við Magnús Norðdahl