Samkvæmt lögum Stéttarfélags Vesturlands ber að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar. Þetta ár ber að kjósa í stjórn sem hér segir:
Til 2ja ára: Varaformann, vararitara og 2. meðstjórnanda.
Framboðslistum til stjórnarkjörs í Stéttarfélagi Vesturlands árið 2026, ásamt meðmælum a.m.k. 30 fullgildra félagsmanna, ber að skila á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands, Alþýðuhúsinu Sæunnargötu 2a, merkt kjörstjórn, fyrir kl. 12:00 fimmtudaginn 5. mars 2026.
Hvert það framboð er gilt sem fram kemur innan þess tíma og hefur skriflegt samþykki þeirra sem framboðslistann skipa.
Trúnaðarráð Stéttarfélags Vesturlands hefur ákveðið að leggja fram eftirfarandi lista vegna stjórnarkjörs 2026. – til 2ja ára.
Komi ekki fram fleiri listar teljast þeir sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir:
Varaformaður: Narfi Jónsson, Utandeild 320 Reykholti
Vararitari: Þuríður Jóney Sigurðardóttir, Sunnubraut 3b 370 Búðardal
2.meðstj.: Þorvaldur Ásberg Kristbergsson, Skallagrímsgata 1 310 Borgarnesi
Borgarnesi, 19. febrúar 2026
Kjörstjórn Stéttarfélags Vesturlands
