Víðsjárverð þróun víða í leikskólamálum

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Formannafundur Starfgreinasambandsins þann 10. desember síðastliðinn, sendi frá sér ályktun um alvarlega þróun á vistunartíma barna á leikskólum víðsvegar um landið. Ráðgert er að daglegur vistunartími verði styttur í 6 klukkustundir en gjald fyrir dvalartíma umfram þann tíma verði hækkað verulega.

Þessar breytingar hafa alvarlega afleiðingar í för með sér fyrir stóran hóp á vinnumarkaði sem hefur ekki enn fengið neina styttingu og starfar því fulla 40 tíma á viku. Ljóst er að þessi stytting á vistunartíma er ótímabær og mun hafa víðfeðm neikvæð áhrif í samfélaginu. Mun hún draga úr ráðstöfunartekjum tekjulægstu heimilanna, auka ójöfnuð, grafa undan atvinnuþátttöku og er auk þess dýrkeypt bakslag í jafnréttisbaráttunni sem á þó enn langt í land, líkt og segir í ályktunni. Vilja því formenn krefjast þess að sveitarfélög leiti annarra leiða til að mæta mönnunarvanda leikskólana.

Ályktunina í heild má lesa hér að neðan:

Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands varar við þeirri þróun sem orðið hefur í leikskólamálum víða um land, þar sem daglegur vistunartími er styttur í 6 klukkustundir en gjald fyrir dvalartíma umfram þann tíma er hækkað verulega. Einnig hefur svokölluðum skráningardögum fjölgað, þ.e.a.s. dögum sem ekki eru innifaldir í föstu mánaðargjaldi og greiða þarf sérstaklega fyrir.

Þeir foreldrar, sem vinnu sinnar vegna hafa ekki tök á því að stytta vistunartíma barna sinna, greiða eftir breytingarnar mun hærra gjald en áður svo nemur tugum prósenta. Bitnar þetta helst á tekjulágum foreldrum með lítið stuðningsnet og lítinn sveigjanleika í starfi.

Þótt sveigjanleiki hafi aukist hjá þeim hluta vinnumarkaðarins sem nýtur styttingu vinnuvikunnar, hefur stærstur hluti félagsmanna aðildarfélaga SGS alls enga styttingu fengið – vinnur ennþá 40 stunda vinnuviku og hefur ekki tök á að vinna að heiman hluta úr degi eða sækja börn fyrr á leikskólann. Þessi staðreynd virðist hafa farið fram hjá þeim sem stýra leikskólamálum.

Þangað til stytting vinnuvikunnar hefur verið innleidd hjá vinnumarkaðinum í heild sinni er þessi viðsjárverða þróun algerlega ótímabær. Hún mun draga úr ráðstöfunartekjum tekjulægstu heimilanna, auka ójöfnuð, grafa undan atvinnuþátttöku og er dýrkeypt bakslag í jafnréttisbaráttunni sem þó á enn langt í land.

Formannafundur Starfsgreinasamband Íslands krefst þess að sveitarfélög leiti annarra leiða til að leysa mönnunarvanda leikskólanna, þessi leið er of dýru verði keypt.

Mynd: Borgarbyggð.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei