Er 94 fermetra hús sem félagið eignaðist árið 2010. Húsið stendur aðeins framar en Kiðárskógur 1 og er hægramegin. Því fylgir ágætur pallur, heitur pottur og smá garður
Nýlega er búið að taka allt húsið í gegn og breyta skipulaginu svo nú eru 3 herbergi. Eitt herbergi með hjónarúmi, eitt herbergi með rúmi sem er ein og hálf breidd og ein koja ásamt auka rúmi og eitt barnarúm. Gistirými er fyrir 8 manns. Fjórar dýnur eru á svefnlofti hússins.
Húsafell er dásamleg náttúruperla þar sem hægt er að finna skemmtilegar gönguleiðir, skella sér í sund eða bara njóta ferska loftsins og kyrrðarinnar.
Helgin er alltaf leigð frá mánudegi til föstudags yfir vetrartíman. Yfir sumartíman er aðeins hægt að fá leigt viku til viku.
Til að bóka þarf að byrja á að skrá sig inn á mínar síður og fara í húsið og velja orlofskerfi framboð, þá koma upp þær eignir sem við eigum og þá þarf að passa að velja mánuðinn sem leigja á í og svo gengur þetta nokkuð augljóst fyrir sig.
Á sumrin er húsinu úthlutað og þá þarf einnig að nýta punkta en í vetrarleigu gildir fyrstur kemur fyrstur fær og punktar ekki dregnir frá.
Upplýsingar og umgengnisreglur
Leigutökum ber að ganga vel um og þrífa húsið fyrir brottför, henda rusli í þar til merkta ruslagáma og gæta þess að hver hlutur sé á sínum stað. Leigutakar þurfa að hafa með sér sængurfatnað og handklæði en umsjónarmaður sér um að tuskur og diskaþurrkur séu til staðar ásamt hreinlætisvörum.
Verði misbrestur á því að húsið sé þrifin fyrir brottför, áskilur félagið sér rétt til að láta umsjónarmann bæta þar um á kostnað leigjenda.
Gaskútur er við grillið í bústaðnum og þurfa leigjendur að sjá til þess að um leið og hann tæmist sé gas sótt í þjónustumiðstöðina og gefið upp að það sé fyrir Stéttarfélag Vesturlands, þannig að alltaf sé gas til staðar við brottför.
Gestir eru beðnir að sýna tillitssemi varðandi umferð um svæðið og ónáða ekki aðra gesti með óþarfa háreysti eða skarkala.
Ekki er leyfilegt að hafa gæludýr í bústaðnum. Reykingar eru bannaðar í bústaðnum og á það einnig við um rafrettur.
Sé einhverju ábótavant sem gestir vilja koma á framfæri eru þeir beðnir að hafa samband við Stéttarfélag Vesturlands 430-0430/stettvest@stettvest.is, eða skrifa miða til umsjónarmanns. Í neyðartilfellum má hafa samband við Sigríði Bjarnadóttur í síma 892-3468, en hún annast umsjón með húsinu.
Lykilorð á internetið er að finna í húsinu, vinsamlegast takið router ekki úr sambandi
Gestir eru minntir á að skilja lykla eftir í lyklahúsi við útidyr við brottför.
Leiðbeiningar með heitum potti:
Fylling
- Efsta þrepið upp í pottinn úti er laust, það skal dregið frá til að komast í lokann til að opna og loka fyrir frárennsli pottsins. Snúið handfanginu til vinstri til að loka fyrir frárennsli pottsins svo vatn hætti að renna frá honum. Þegar pottur er tæmdur er sömu sveif snúið til hægri til að opna fyrir frárennslið aftur og pottur tæmist.
- Í hitagrindinni inn í hitakompu þarf að setja rofann fyrir pottinn „Á“, eru merkingar þess efnis á rofanum. Þar eru blöndunartækin fyrir pottinn staðset og er skrúfað frá þeim til að opna fyrir rennslið í pottinn. Best er að breyta ekki hitastillingunni á þeim. Potturinn tekur um 3 klukkustundir að fylla sig er því best að byrja á því að fylla pottinn við komuna í húsið.
Tæming
- Þegar pottur er tæmdur þarf að byrja á að skrúfa alveg fyrir vatnið á blöndunartækjunum.
- Stillið rofann fyrir pottinn á „AF“
- Snúið sveifinni bakvið efsta þrepið úti við pottinn til hægri til að skrúfa frá frárennslinu svo renni úr pottinum
- Notið hreinsiefni og tusku og pottaburstan í hitakompu til að þrífa pottinn og smúlið vel með köldu vatni. Gula slangan í garðskúrnum passar upp á kaldavatnskranan í hitakompunni.
Dvalargestir þurfa að sjá sjálfir um að þrífa heita pottinn og ber þeim að skila honum hreinum að dvöl lokinni. Hafa skal lok yfir pottinum þegar hann er ekki í notkun. Göngum vel um.
Eftirfarandi reglur gilda um alla orlofskosti og eru gestir vinsamlegast beðnir um að virða þær:
- Reykingar eru stranglega bannaðar í orlofsíbúðum og húsum Stéttarfélags Vesturlands. Það á einnig við um rafrettur.
- Leigutaka er óheimilt að framselja leigusamninginn án samþykkis félagsins.
- Ekki er leyfilegt að hafa gæludýr í orlofsíbúðum félagsins.
- Helgarleiga í öllum íbúðum og sumarhúsum félagsins er 3 nætur frá föstudegi til mánudags.
- Hafi félagsmaður bókað og greitt fyrir íbúð með meira en tveggja mánaða fyrirvara og geti svo ekki nýtt sér leiguna, þá er honum endurgreitt að fullu óski hans þess áður en 60 dagar eru í leigudag.
- Ef minna en 60 dagar eru að leigudegi, er íbúðin losuð á vefnum og auglýst á heimasíðu félgasins. Náist að leigja húsið/íbúðina á næstu 50 dögum, fæst endurgreitt að fullu. Eftir 50 daga, þ.e. þegar minna en 10 dagar eru í útleigu fæst ekkert endurgreitt.