Ríkisstjórnin sniðgengur kröfur ASÍ um lagabreytingar

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Það blæs ekki byrlega varðandi samvinnu ríkisstjórnar og ASÍ fyrir komandi kjaraviðræður. Í síðustu viku kom í ljós að frumvarp sem hafði verið í smíðum í félagsmála-ráðuneytinu frá því í júní varðandi breytingar á lögum um atvinnu-leysistryggingar, og unnið var með aðkomu aðila vinnumarkaðarins, hafði tekið veigamiklum breytingum. Án nokkurs samráðs.


 


Upphaflega frumvarpið hafði það að markmiði að auka réttindi launafólks. Það kvað á um lengingu bótatímabilsins úr 3 árum í 4 ár, að þátttaka í virkum vinnumarkaðsaðgerðum dragist ekki frá bótatímabili, framlengingu ákvæða um hlutabætur og sjálfstætt starfandi auk réttinda vegna 2 vikna orlofs og 5 daga veikindaleyfis án þess að slíkt skerði bætur.


Ríkisstjórnin hefur nú gert breytingar á frumvarpinu sem verkalýðshreyfingin telur óviðunandi. M.a. sett inn ákvæði um að lenging bótatímans í 4 ár nái bara til þeirra sem misstu vinnuna eftir 1. maí 2008. Þessi breyting kemur sér afar illa fyrir marga og þá sérstaklega á Suðurnesjunum en fjölmargir á því svæði misstu vinnuna eftir brottför hersins.


Það ríkir því lítill trúnaður milli ASÍ og ríkisstjórnarinnar í aðdraganda kjarasamninga sem er vægast sagt slæmt veganesti enda búist við erfiðum samningaviðræðum. Ágreiningurinn kemur fram á versta tíma og bætist ofan á vanefndir ríkisstjórnarinnar varðandi framlög í Starfsendurhæfingarsjóð. Forystusveit ASÍ átti fund með oddvitum ríkisstjórnarinnar á föstudag þar sem skilaboð verkalýðshreyfingarinnar til ríkisstjórnar voru skýr; orð skulu standa.



 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei