Nýr eftirlitsfulltrúi ráðinn til starfa

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

 Stéttarfélag Vesturlands og Verkalýðsfélag Snæfellinga réðu síðastliðið vor til sín eftirlitsfulltrúa til að hafa eftirlit með vinnustaðaskírteinum og hóf hann störf 15. apríl.
Vinnustaðaskírteinum er ætlað að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum á vinnumarkaði en mikilvægt er að öll fyrirtæki sitji við sama borð og fylgi settum reglum.
Hlutverk eftirlitsfulltrúans verður að fylgjast með því að vinnustaðaskírteini hafi verið gefin út í samræmi við lög nr. 42/2010.
 


Einar G. Pálsson, sem ráðinn var sl. vor lét af störfum í lok júlí, en hann tók við starfi fjármálafulltrúa hjá Borgarbyggð. Einar tók einnig þátt í átaki Ríkiskattstjóra, ASÍ og SA, undir kjörorðinu: Leggur þú þitt að mörkum.
Nú hafa félögin ráðið Orra Svein Jónsson til að ljúka því átaksverkefni sem hófst hjá félögunum í apríl. Hann mun gegna þessu starfi til áramóta og hafa aðsetur á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands í Borgarnesi.
Orri mun fara um starfssvæði beggja félaganna á næstunni til að fylgja eftir reglum um útgáfu og notkun skírteinanna.
Lög nr. 42/2010 voru sett í maí á sl. ári og skylda atvinnurekendur í ákveðnum greinum til að útbúa vinnustaðaskírteini fyrir starfsmenn sína sem þeir eiga að bera á sér við vinnu. Þær greinar sem um ræðir eru fyrst um sinn byggingariðnaður og ferðaþjónusta, samið verður í kjarasamningum hverju sinni um mögulega útvíkkun reglnanna.  Markmið laganna er að tryggja að atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum, aðallega að koma í veg fyrir “svarta” vinnu, bótasvik og vinnu útlendinga án atvinnuleyfa. Samtökum atvinnulífsins og Alþýðusambandi Íslands var einnig með lögunum falið að hafa eftirlit með að reglunum væri framfylgt.
Með viðbótarsamkomulagi sem undirritað var 5. maí 2011, bættust við nýjar atvinnugreinar, þar sem skylt er að bera vinnustaðaskírteini.
Eftirlitið hefur verið virkt víða um land og verður nú á starfssvæði stéttarfélaganna á Vesturlandi sem nær frá Hvalfjarðarbotni norður í botn Gilsfjarðar að Akranesi undanskildu. Eftirlitið er þó ekki bundið starfssvæðum stéttarfélaganna og setja þau starfsemi eftirlitsfulltrúanna ekki nein takmörk.  
   

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei