Garðs Apótek oftast með lægsta verð á lausasölulyfjum

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Garðs Apótek við Sogaveg var oftast með lægsta verðið á lausasölulyfjum þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í apótekum mánudaginn 18. júní. Lyfjaborg Borgartúni var oftast með hæsta verðið í könnuninni. Verðmunur á lausasölulyfjum var frá 23% upp í 71% en í flestum tilvikum var fjórðungs til helmings verðmunur. Verðlagseftirlitið vill hvetja neytendur til að spyrja um samheitalyf, sem gætu verið á hagstæðara verði.


Kannað var verð á 44 algengum lausasölulyfjum sem eru seld án lyfseðils í apótekum. Farið var í apótek á öllu landinu en Árbæjarapótek neitaði þátttöku í könnuninni. Garðs Apótek á Sogavegi var með lægsta verðið í 23 tilvikum af 44 og Lyfjaver á Suðurlandsbraut var lægst í 6 tilvikum af 44. Hæsta verðið var oftast að finna í Lyfjaborg í Borgartúni eða í 14 tilvikum af 44. Þar á eftir kom apótekið Lyfjaval í Álftamýri með hæsta verðið í 13 tilvikum af 44.
Mestur verðmunur í könnuninni var á Panodil Junior endaþarmsstílum (10 stk. 125 mg.) sem voru dýrastir á 790 kr. hjá Lyf og heilsu á Selfossi en ódýrastir á 462 kr. í Austurbæjar Apóteki í Ögurhvarfi, en það gerir 328 kr. verðmun eða 71%. Næst mesti verðmunur var á Ibufen (30 stk. 400 mg.) sem var dýrast á 595 kr. í Lyfjaborg Borgartúni en ódýrast á 355 kr. í Reykjavíkur Apóteki á Seljavegi, sem er 68% verðmunur. Ovestin stílar (15 stk.) voru dýrastir í Austurbæjar Apóteki í Ögurhvarfi á 2.466 kr. en ódýrastir hjá Garðs Apóteki á Sogavegi á 1.490 kr. sem gerir 66% verðmun.
Minnstur verðmunur í könnuninni var á Nitroglyserin DAK tungurótatöflu (25 stk. af 0,25 mg.) sem voru dýrastar á 951 kr. í Lyfju í Borgarnesi en ódýrastar á 773 kr. hjá Lyfjaveri á Suðurlandsbraut, sem er 23% verðmunur. Af öðrum algengum lausasölulyfjum má nefna að nikótínlyfið Nicotinell lakrids  (2 mg. 24 stk.) sem var dýrast á 1.190 kr. hjá Lyfjaborg Borgartúni en ódýrast á 770 kr. í Austurbæjar Apóteki Ögurhvarfi, verðmunurinn er 420 kr. eða 55%. Ofnæmislyfið Clarityn  (10 mg. 10 stk.) var dýrast á 1.290 kr. hjá Lyfjaborg í Borgartúni en ódýrast á 870 kr. hjá Garðs Apóteki á Sogavegi, sem er 48% verðmunur.    
Sjá nánar í töflu.
Könnunin var gerð í eftirtöldum apótekum: Apóteki Hafnarfjarðar, Tjarnarvöllum 11; Apótekarinn Hafnarstræti, Akureyri; Apótekinu Akureyri, Furuvöllum 17; Garðs Apóteki, Sogavegi 108; Lyf og heilsu Selfossi; Lyfju Borgarnesi; Lyfjavali Álftamýri, Álftamýri 1-5; Lyfjaveri, Suðurlandsbraut 22; Reykjavíkur Apóteki, Seljavegi 2; Rima Apóteki, Langarima 21; Skipholts Apóteki, Skipholti 50B; Urðarapóteki, Vínlandsleið 16; Akureyrarapóteki, Kaupangi við Mýrarveg; Apóteki Vesturlands, Smiðjuvöllum 32, Akranesi; Siglufjarðar Apóteki, Norðurgötu 4B; Apóteki Garðabæjar, Litlatúni 3; Lyfjaborg Borgartúni 28; Austurbæjar Apóteki, Ögurhvarfi 3.  Árbæjarapótek neitaði þátttöku í könnunni.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Óheimilt er að vitna í þessa könnun í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.
  

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei