DESEMBERUPPBÓT 2016

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Desemberuppbótin árið 2016 er kr. 82.000,- fyrir fullt starf hjá þeim sem starfa samkvæmt kjarasamningum SGS og SA, LÍV og SA, Samiðn og SA og SGS og fjármálaráðherra (hjá ríkinu). 


 


Hjá þeim sem starfa skv. kjarasamningi SGS við SNS (samninganefnd sveitarfélaga) er desemberuppbótin 2016 kr. 106.250,-


 


Samkvæmt kjarasamningum við Elkem og Klafa er desemberuppbót þeirra starfsmanna  181.458.-


og starfsmenn Norðuráls eiga skv. kjarasamningi að fá kr. 185.688.- í desemberuppbót.


 


Desemberuppbót miðast við almanaksárið og teljast 45 unnar vikur fullt ársstarf eða 1800 vinnustundir. Þeir sem hafa verið samfellt í starfi hjá sama atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu vikuna í desember skulu fá greidda desemberuppbót miðað við starfshlutfall og starfstíma.


 


 


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei