Fræðslu- og samráðsdagur bílstjóra og tækjastjórnenda

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Starfsgreinasambandið stendur fyrir fræðslu- og samráðsdegi fyrir bílstjóra og tækjastjórnendur þann 18. Apríl næstkomandi kl. 10-16:30 hér á höfuðborgarsvæðinu (nánari staðsetning síðar). Hugmyndin er að trúnaðarmenn eða aðrir fulltrúar stéttarinnar eigi sviðið þennan dag og fjalli um kjör, aðbúnað og aðstæður sínar. Uppbyggingin er svipuð og hjá félagsliðum.


Drög að dagskrá eru svona:


Kl. 10:00 – 11:00              Af hverju allar þessar reglur? Fulltrúi Samgöngustofu fer yfir reglur um endurmenntun,  aksturstíma og fleira og ástæður þeirra.


Kl. 11:00 – 12:00              Kjarasamningar bílstjóra og tækjastjórnenda


Kl. 12:00 – 13:00              Hádegismatur


Kl. 13:00 – 14:30              Hópavinna um stöðu bílstjóra og tækjastjórnenda – framtíðarsýn,


Kl. 14:30 – 15:00              Kaffi


Kl. 15:00 – 16:00              Verndum okkur við vinnuna. Fulltrúi Vinnueftirlitsins fer yfir


                                        nauðsynlegar ráðstafanir til að hlúa að sjálfum sér við vinnu.
Kl. 16:00 – 16:30              Samantekt og fundalok


Trúnaðarmenn hjá Stéttarfélagi Vesturlands sem starfa sem bifreiða og tækjastjórnendur og hafa áhuga á taka þátt eru beðnir að skrá sig hjá stettvest@stettvest.is  fyrir 6. apríl. 


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei