Hækkun á hámarki einstaklingsstyrkja

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Hækkun á hámarki einstaklingsstyrkja

Stjórnir sjóðanna Landsmenntar, Sjómenntar, Ríkismenntar og Sveitamenntar samþykktu nú í 
desember að hækka hámark einstaklingsstyrkja úr 100 þúsund í 130 þúsund.

Samþykkt er að hækka um næstu áramót hámark einstaklingsstyrkja í kr. 130.000.- þar með 
hækkar einnig hámark á uppsöfnuðum rétti til styrks í kr. 390.000.-
Hækkunin tekur gildi f.o.m. 1.janúar 2020 og gildir gagnvart því námi sem hefst f.o.m.
 þeim tíma.


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei