Sálfræðiþjónusta fyrir nemendur MB

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þann 24.júní 2020 skrifuðu skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar og formaður Stéttarfélags Vesturlands, fyrir hönd sjúkrasjóðs félagsins, undir samkomulag um stuðning við nemendur sem stunda nám í MB í formi endurgreiðslu á sálfræðiþjónustu.
Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands hefur styrkt nemendur MB með þessum hætti síðustu fjögur skólaár og að þessu sinni var gerður samningur til tveggja ára og er hugsaður sem forvörn gegn brottfalli nemenda úr skóla.
Gegn tilvísun frá Námsráðgjafa MB getur hver nemandi fengið endurgreiðslu eða styrk fyrir allt að fjórum sálfræðitímum á skólaári. Menntaskóli Borgarfjarðar greiðir fyrsta tímann en Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands næstu þrjá tíma að hámarki. MB sér um að endurgreiða nemenda eða greiða sálfræðingi eftir því sem við á.

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei