Hlutverk sjóðsins skal vera að standa að menningar og fræðslustarfi meðal félagsmanna Stéttarfélags Vesturlands t.d. með eftirgreindum hætti:
- Að kosta eða styrkja alhliða fræðslustarfsemi um störf verkalýðsfélaga, sögu þeirra og skipulag.
- Að styrkja félagsmenn til náms, sem ekki er styrkhæft í menntasjóðum sem félagið á aðild að, en miðar að því að gera þá hæfari í starfi.
- Að kosta eða styrkja félagsmálafræðslu.
- Að stuðla að varðveislu á sögu félagsins.
- Að kosta tækjabúnað í fundarsal félagsins.
Til að sækja um í sjóðinn þarf að fylla út umsókn á skrifstofu félagsins og skila staðfestingu á námi eða greiðsluseðli og bankakvittun.