Bygging hagkvæmra leiguíbúða fyrir verkafólk

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Aðalfundur Stéttarfélags Vesturlands haldinn mánudaginn 3.júní  sl. í Alþýðuhúsinu sendir frá sér eftirfarandi ályktun:

Aðalfundur Stéttarfélags Vesturlands haldinn mánudaginn 3. júní 2024 í Alþýðuhúsinu í Borgarnesi, ítrekar áskorun sem stjórn félagsins sendi Sveitarstjórn Borgarbyggðar fyrir rúmum 5 árum og fjallaði um að bjóða Bjargi íbúðafélagi til samstarfs um byggingu hagkvæmra leiguíbúða fyrir verkafólk. Rætt hefur verið við 3 sveitarstjóra um þetta mál og því verið vel tekið af þeim öllum. Fundurinn ítrekar að það er frumskilyrði fyrir því að byggðar verði hagkvæmar íbúðir á viðráðanlegu verði og að sveitarfélögin leggi fram lóðir sem falla að hugmyndafræði Bjargs um hagkvæmar lausnir.

5 ár til að skoða með velvild ætti að vera nóg ef vilji til framkvæmda er fyrir hendi.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei