Sálfræðiþjónusta fyrir nemendur MB

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands og Menntaskóli Borgarfjarðar  hafa endurnýjað samkomulag um sálfræðiþjónustu fyrir nemendur skólans. Við erum stolt af því að taka þátt í þessu verkefni og vonumst til þess að nemendur nýti sér þetta vel.

Framkvæmd er þannig háttað að tilvísun frá náms- og starfsráðgjafa MB veitir nemanda rétt á endurgreiðslu/styrk allt að fjórum sálfræðitímum á skólaári. MB greiðir fyrsta tímann og Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands næstu þrjá, að hámarki.

Á meðfylgjandi mynd eru Bragi Þór Svavarsson skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar og Silja Eyrún Steingrímsdóttir formaður Stéttarfélags Vesturlands.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei