Stéttarfélag Vesturlands 20 ára

Stéttarfélag VesturlandsFréttir

31. maí nk. fagnar Stéttarfélag Vesturlands 20 ára afmæli sínu. Félagið sem varð til þegar Verkalýðsfélag Borgarnes, Verkalýðsfélagið Valur í Búðardal og Verkalýðsfélagið Hörður í Hvalfjarðarsveit sameinuðust hefur dafnað vel þessi 20 ár frá stofnun þess. Lét StéttVest hanna sérstakt afmælismerki vegna þessara tímamóta. Merkin, sem eru tvö, eru hönnuð af Heiði Hörn Hjartardóttur grafískum hönnuði og eru sérstak prýði. Í tilefni af afmælinu verður opið hús á sjálfan afmælisdaginn, 31. maí, milli klukkan 14:00 og 17:00 í húsnæði félagsins Alþýðuhúsinu Sæunnargötu 2a, Borgarnesi. Eru öll hjartanlega velkomin að fagna með okkur þessum tímamótum.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei