Endurnýjun samnings við Menntaskóla Borgarfjarðar

Stéttarfélag VesturlandsFréttir

Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands og Menntaskóli Borgarfjarðar hafa endurnýjað samstarf sitt um stuðning við nemendur skólans. Samningurinn felur í sér endurgreiðslu á sálfræðiþjónustu fyrir nemendur sem þurfa á því að halda og er mikilvægur liður í að efla velferð og forvarnir innan skólans. Tilvísun frá náms- og starfsráðgjafa menntasólans veitir nemanda rétt á endurgreiðslu/styrk  allt að fjórum tímum hjá sálfræðing á skólaárinu. Greiðir skólinn fyrsta tímann og Sjúkrasjóður StéttVest næstu þrjá tíma, að hámarki.

Samningur sem þessi er mikilvægur stuðningur við nemendur og er það okkur sönn ánægja að efla ungt fólk í námi. Samningurinn sem var undirritaður í gær var endurnýjaður til tveggja ára. Á myndinni sem fylgir fréttinni eru þau Silja Eyrún Steingrímsdóttir, formaður StéttVest, Elín Kristjánsdóttir, náms- og starfsráðgjfi Menntaskóla Borgarfjarðar og Bragi Þór Svavarsson skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei