47. þing Alþýðusambands Íslands fer fram dagana 14.–16. október og í tilefni af því verður haldið málþing, opið öllum, miðvikudaginn 14. október kl. 10–13 í hátíðarsal Hilton Reykjavík. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er „Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu“. Þar verður horft fram á veginn og rætt hvernig verkalýðshreyfingin ætlar að mæta þeim áskorunum sem fylgja tækni- og loftslagsbreytingum.
Meðal ræðumanna eru Mariana Mazzucato, prófessor við University College London og einn þekktasti hagfræðingur samtímans, og Luc Triangle, aðalframkvæmdastjóri Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC), sem er málsvari um 200 milljóna launafólks um allan heim. Bæði flytja þau fjarerindi. Rætt verður um hvernig gervigreind mun breyta störfum og réttindum launafólks, hvort hún skapi ný tækifæri eða nýjan ójöfnuð, og hvaða möguleika fólk á Íslandi hefur til að bæta kjör sín milli kynslóða.

