Á dögunum fór fram tveggja daga málþing NU-HRCT í Reykjavík. NU-HRCT er norrænn samstarfsvettvangur stéttarfélaga starfsfólks á hótelum, kaffihúsum, skyndibitastöðum og veitingahúsum, auk annarra starfa í ferðaþjónustu. Bæði SGS og Matvís eiga aðild að samtökunum og komu að undirbúningi og skipulagningu málþingsins.
Markmið málþingsins var að auka skilning á kjarasamningum í hótel- og veitingagreinum á Norðurlöndunum, greina hvað er líkt og ólíkt milli landa og miðla reynslu milli þátttakenda.
Meðal umræðuefna voru verklag við gerð kjarasamninga, launastig og launaþróun í greininni, vinnutími og fyrirkomulag hans, hlutastörf og helstu áskoranir sem blasa við í hverju landi.
Málþingið sóttu 20 fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum. Silja Eyrún Steingrímsdóttir sat málþingið fyrir hönd Stéttarfélags Vesturlands en alls sátu sjö fulltrúar frá aðildarfélögum SGS þingið.
Hér má lesa frekar um málþingið.

