Umsóknarfrestur um orlofskostina 2011

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands minnir á að umsóknarfrestur um orlofskostina sumarið 2011 rennur út þann 20. apríl næstkomandi. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöðin hér og hægt er að nálgast orlofsblaðið með því að smella á myndina.  

Eftirlit með útgáfu vinnustaðaskírteina að hefjast

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Einar G. Pálsson Stéttarfélag Vesturlands og Verkalýðsfélag Snæfellinga hafa sameinast um að ráða til sín eftirlitsfulltrúa til að hafa eftirlit með vinnustaðaskírteinum og er hann að hefja störf þessa dagana. Vinnustaðaskírteinum er ætlað að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum á vinnumarkaði en mikilvægt er að öll fyrirtæki sitji við sama borð og fylgi settum reglum.Hlutverk eftirlitsfulltrúans verður að fylgjast …

Aðalfundi félagsins frestað fram í maí.

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Til stóð að halda aðalfund Stéttarfélags Vesturlands 14. apríl, en ákveðið hefur verið að fresta honum fram í maí.  Ýmsir samverkandi þættir hafa orðið til þess að undirbúningur fundarins  gekk ekki nægilega vel.  Reikningar félagsins eiga að liggja fyrir a.m.k. viku fyrir fundinn og þegar að ljóst var að svo var ekki, þá var ekki um annað að ræða en …

Orlofsblaðið væntanlegt undir lok vikunnar

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Starfsfólk Stéttarfélags Vesturlands hefur unnið að orlofsblaðinu 2011 undanfarið og er það væntanlegt úr prentun í dag. Félagsmenn mega því búast við því að fá blaðið inn um lúguna hjá sér síðar í þessari viku. En fyrir þá sem ekki geta beðið þá er hægt að nálgast blaðið hér   Þess má geta að umsóknarfresturinn til að sækja um orlofskostina í ár …

Aðalfundir deilda Stéttarfélags Vesturlands

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Aðalfundir deilda Stéttarfélags Vesturlands verða haldnir þriðjudaginn 22. mars kl. 20.00í Alþýðuhúsinu, Sæunnargötu 2a.Deildirnar eru: Iðnsveinadeild, Iðnaðar- mannvirkja- og stóriðjudeild, Matvæla – flutninga- og þjónustudeild, Deild verslunar- og skrifstofufólks og Deild starfsfólks hjá ríki og sveitarfélögum.Dagskrá:  1. Fræðsluerindi –  Hvernig tekst maður á við mótlæti á jákvæðan og uppbyggilegan hátt? Elínborg Sturludóttir sóknarprestur í Stafholti.   2. Venjuleg aðalfundarstörf  3. Verkalýðsfélag Borgarness …

Gangur kjaraviðræðna

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Samninganefnd ASÍ hitti forystu SA á fundi hjá ríkissáttasemjara 10. febrúar til að freista þess að koma kjaraviðræðum í gang að nýju en þær höfðu að mestu legið niðri í tvær vikur vegna þeirrar kröfu SA að niðurstaða vegna breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu lægju fyrir áður en samið yrði. Niðurstaða þess fundar var að hefja samningaviðræður að nýju. Jafnframt var ákveðið …

Ný könnun – langflestir vilja samræmda launastefnu

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Ný skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir ASÍ sýnir að 94% þeirra sem taka afstöðu vilja sambærilegar launahækkanir fyrir alla í komandi kjarasamningum á móti 6% sem vilja meiri launahækkanir til þeirra sem starfa í útflutningsgreinum. Þá vilja 48% að verkalýðshreyfingin leggi mesta áherslu á að tryggja kaupmátt launa í yfirstandandi kjaraviðræðum en 24% vilja að áherslan sé að …

Opið hús í Kiðárskógum 10 í Húsafelli 27. febrúar

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands hefur fest kaup á þessu glæsilega sumarhúsi í Kiðárskógum 10 í Húsafelli. Í tilefni þess að nú mun félagið taka húsið formlega í notkun í næstu viku, ætlum við að bjóða félagsmönnum og fjölskyldum þeirra að koma og skoða húsið sunnudaginn 27. febrúar milli kl. 14:00 og 16:00. Heitt á könnunni, tilvalið tækifæri að fara sunnudagsrúnt með fjölskylduna upp í Húsafell!

Kyrrstaðan rofin – kjaraviðræður á fullt skrið

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Samninganefndir ASÍ og SA ræddu fyrir helgi mögulega tímalengd og uppbyggingu væntanlegs kjarasamnings. Aðilar hafa orðið sammála um að setja kraft í kjaraviðræður sem miðast við gerð samnings til 3 ára. Reyna á að ljúka þeirri vinnu eins hratt og mögulegt er. Hugmynd aðila er að efni slíks kjarasamnings myndi öðlast gildi í júní að því gefnu að aðilar vinnumarkaðarins …

Styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þann 15.janúar var opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna. Ráðherra velferðarmála veitir styrkina, sem veittir hafa verið ár hvert síðan 1991, en umsjón með styrkveitingum hefur  ráðgjafi Vinnumálastofnunar á Sauðárkróki.  Konur sem hafa góðar viðskiptahugmyndir eða reka fyrirtæki og eru að þróa nýjar vörur eða þjónustu, geta sótt um styrki sem geta numið allt að 2 milljónum króna. …