Atkvæðagreiðslu er lokið hjá 18 aðildarfélögum Starfsgreinasambands Íslands, vegna nýs kjarasamnings SGS og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs sem undirritaður var 15. júní síðastliðinn. Rafræn atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna stóð yfir dagana 16.-21. júní. Á kjörskrá voru 1.418 manns og var kjörsókn 24,26%. Já sögðu 92,44%, nei sögðu 4,65% og 2,91% tóku ekki afstöðu. Samningurinn var því samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta hjá þeim …
Nýr kjarasamningur við ríkið undirritaður – atkvæðagreiðsla er hafin
Samninganefnd SGS skrifaði undir nýjan kjarasamning við ríkið eftir hádegi í gær. Mjög góður árangur náðist við samningagerðina og það án verkfallsátaka. Samið var um krónutöluhækkanir á taxta og er meðal launahækkun á virka taxta um kr. 43.000 allt eftir innröðun í launatöflu á viðkomandi stofnun. Laun verða leiðrétt afturvirkt frá 1. apríl 2023. Ekki síður mikilvægur árangur náðist með …
SGS vísar kjaradeilu við ríkið til ríkissáttasemjara
Starfsgreinasamband Íslands (SGS) telur einsýnt að ekki verði komist lengra í viðræðum við samninganefnd ríkisins vegna endurnýjunar kjarasamnings SGS og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs sem rann út 31. mars 2023. Samningsaðilar hafa á undanförnum vikum átt fjölmarga fundi þar sem SGS hefur komið kröfum sínum málefnalega á framfæri við samninganefnd ríkisins, en án árangurs. Í ljósi þess hversu langt …
Vinnutími barna og unglinga
Nú þegar sumarið er á næsta leiti eru ungmenni um allt hérað að hefja störf, sum í sinni fyrstu vinnu. En börn og ungmenni mega ekki vinna endalaust og með því að ýta hér má sjá hvernig vinnu þeirra skuli háttað samkvæmt vinnuréttarlögum.
Útboðum á ræstingu hjá ýmsum stofnunum Borgarbyggðar mótmælt
Stéttarfélag Vesturlands og Kjölur stéttarfélag í almannaþjónustu mótmæla vinnubrögðum sveitarstjórnar Borgarbyggðar vegna fyrirhugaðs útboðs á ræstingum hjá ýmsum stofnunum sveitarfélagsins. Stéttarfélögin og þeir félagsmenn þeirra sem starfa hjá Grunnskóla Borgarness sem skólaliðar með ræstingu furða sig á þessari ákvörðun. Í nóvember 2022 segir m.a. í fundargerð Byggðarráðs um stöðu ræstinga að: mikilvægt sé að horfa til gæða, sveigjanleika og fyrirsjáanleika …
1.maí í Borgarnesi og Búðardal
Það var ánægjulegt hversu margir komu með okkur í kröfugöngu 1.maí sl. en í ár voru 50 ár síðan fyrst var gengin kröfuganga í Borgarnesi. Einnig komu margir á baráttufundinn okkar sem haldinn var í Hjálmakletti sem var virkilega gaman. Fram komu krakkar á unglingastigi Grunnskólans í Borgarnesi sem sungu fyrir okkur lög úr Mamma Mía og Sigga Beinteins söng …
Fyrstur kemur fyrstur fær ….
Kæru félagsmenn Nú er úthlutun lokið í orlofshúsin okkar í sumar og opnað hefur verið fyrir þær vikur sem eru lausar og gildir fyrstur kemur fyrstur fær Hægt er að skoða og bóka sumarhús á orlofsvefnum okkar hér
Finnbjörn A. Hermannsson kjörinn forseti ASÍ
Finnbjörn A. Hermannsson var í dag kjörinn forseti ASÍ á 45. þingi Alþýðusambands Íslands. Finnbjörn var sjálfkjörinn í embættið og engin mótframboð bárust. Finnbjörn hefur áratuga reynslu af störfum í verkalýðshreyfingunni. Hann lét nýlega af störfum sem Formaður Byggiðnar, áður Trésmíðafélags Reykjavíkur þar sem hann hafði verið í forsvari í 26 ár. Þá voru kjörnir varaforsetar. Í embætti fyrsta …
Ný forysta í brúnni
Á aðalfundi Stéttarfélags Vesturlands sem haldinn var í Alýðuhúsinu þann 26.aprí 2023 voru gerðar breytingar á stjórn félagsins. Signý Jóhannesdóttir lét af formennsku eftir 15 ár í starfi en í heildina hefur Signý starfað á þessum vettvangi í yfir 40 ár. Baldur Jónsson ritari félagsins gaf heldur ekki kost á sér áfram og fer hann því úr stjórn eftir setu …