Opið hús í Kiðárskógum 10 í Húsafelli 27. febrúar

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands hefur fest kaup á þessu glæsilega sumarhúsi í Kiðárskógum 10 í Húsafelli. Í tilefni þess að nú mun félagið taka húsið formlega í notkun í næstu viku, ætlum við að bjóða félagsmönnum og fjölskyldum þeirra að koma og skoða húsið sunnudaginn 27. febrúar milli kl. 14:00 og 16:00. Heitt á könnunni, tilvalið tækifæri að fara sunnudagsrúnt með fjölskylduna upp í Húsafell!

Kyrrstaðan rofin – kjaraviðræður á fullt skrið

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Samninganefndir ASÍ og SA ræddu fyrir helgi mögulega tímalengd og uppbyggingu væntanlegs kjarasamnings. Aðilar hafa orðið sammála um að setja kraft í kjaraviðræður sem miðast við gerð samnings til 3 ára. Reyna á að ljúka þeirri vinnu eins hratt og mögulegt er. Hugmynd aðila er að efni slíks kjarasamnings myndi öðlast gildi í júní að því gefnu að aðilar vinnumarkaðarins …

Styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þann 15.janúar var opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna. Ráðherra velferðarmála veitir styrkina, sem veittir hafa verið ár hvert síðan 1991, en umsjón með styrkveitingum hefur  ráðgjafi Vinnumálastofnunar á Sauðárkróki.  Konur sem hafa góðar viðskiptahugmyndir eða reka fyrirtæki og eru að þróa nýjar vörur eða þjónustu, geta sótt um styrki sem geta numið allt að 2 milljónum króna. …

Stjórn og trúnaðarráð boðað til áríðandi fundar

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stjórn og trúnaðarmannaráð Stéttarfélags Vesturlands er boðað til áríðandi fundar miðvikudaginn 19. janúar kl. 20:00, í Alþýðuhúsinu Sæunnargötu 2 a í Borgarnesi. Trúnaðarmenn á vinnustöðum eru einnig boðaðir til fundarins. Tilefnið er vísun samninganefndar SGS á kjaradeilu sambandsins við SA til ríkissáttasemjara. Einnig verður fjallað um samræmda launastefnu og hvað hún felur í sér.  

Kjaradeilu SGS við SA vísað til ríkissáttasemjara

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Á fundi samninganefndar Starfsgreinasambands Íslands(SGS) f.h. aðildarfélaga sinna annarra en Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis sem haldinn var í gær,  var samþykkt að vísa kjaradeilu SGS við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara.   Að mati samninganefndarinnar hefur hægt miðað og því sé mikilvægt að þrýsta á um markvissari viðræður sem leiddar verði af ríkissáttasemjara ef …

Ríkisstjórnin sniðgengur kröfur ASÍ um lagabreytingar

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Það blæs ekki byrlega varðandi samvinnu ríkisstjórnar og ASÍ fyrir komandi kjaraviðræður. Í síðustu viku kom í ljós að frumvarp sem hafði verið í smíðum í félagsmála-ráðuneytinu frá því í júní varðandi breytingar á lögum um atvinnu-leysistryggingar, og unnið var með aðkomu aðila vinnumarkaðarins, hafði tekið veigamiklum breytingum. Án nokkurs samráðs.   Upphaflega frumvarpið hafði það að markmiði að auka …

Félagsmenn: Til hamingju með Kvennafrídaginn!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

ASÍ og önnur samtök launafólks á íslenskum vinnumarkaði hvetja félagsmenn aðildar-félaga sinna um allt land til virkrar þátttöku í viðburðum í tilefni Kvennafrídagsins, sem er í dag mánudaginn 25. október.   Í sameiginlegri yfirlýsingu samtakanna segir að samtök launafólks hafi frá upphafi barist fyrir bættum lífskjörum allra landsmanna, jöfnum rétti og jöfnum tækifærum á vinnumarkaði og þannig lagt sitt af …

Ályktanir opinbera sviðs SGS um niðurskurð o.fl.

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Fundur sviðs starfsmanna hjá ríki og sveitarfélögum, sem eru innan SGS hélt fund til undirbúnings kjara-samninga sl. mánudag þar sem farið var yfir efnahagsstöðuna, kjaramálin og væntanlegan flutning á málefnum fatlaðra yfir til sveitarfélaganna, en kjarasamningarnir við ríki og sveitarfélög eru lausir 1. desember n.k.  Á fundinum voru m.a. samþykktar tvær ályktanir, annars vegar um málefni fatlaðra þar sem væntanlegum flutningi á …

Vinnustaðaeftirlit og vinnustaðaskírteini

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þann 15. ágúst sl. tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Vinnustaðaskírteinum er ætlað að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum á vinnumarkaði en mikilvægt er að öll fyrirtæki sitji við sama borð og fylgi settum reglum.Næstu þrjá mánuði munu eftirlitsfulltrúar veita atvinnurekendum sem samkomulagið nær til leiðbeiningar um innleiðingu vinnustaðaskírteina. SA og ASÍ hvetja …

Helgi í Reykjavík losnar vegna forfalla

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Íbúðin að Ránargötu 11 í Reykjavík er nú laus til útleigu frá 22. ágúst til 3. september. Leiguverð til félagsmanna er kr. 3.500. Hægt er að leigja eina nótt í einu, nema um helgar þá þarf að leigja frá föstudegi til sunnudags. Nú er um að gera að grípa tækifærið og skreppa í stutta en notalega borgarferð!