Atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga er lokið. Niðurstöður liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með rúmlega 78% þeirra sem greiddu atkvæði. Atkvæðagreiðslan var rafræn og sameiginleg hjá 18 aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins. Stóð hún yfir frá 14. til 26. september. Á kjörskrá voru 5.950 manns og var kjörsókn 14,62%. Já sögðu 684 eða 78,62%. Nei sögðu …
Starfsmenn sveitarfélaga og Brákarhlíðar – kjósa hér!!
Atkvæðagreiðsla hefst kl 12:00 þann 14.september og líkur þann 26.sepetember kl 9:00 – allar upplýsingar um samninginn má sjá hér Starfsfólk sveitarfélaganna hér Starfsfólk Brákarhlíðar hér
Kynningarfundur um nýjan kjarasamning milli SGS og Sambands íslenskra sveitarfélaga
Þann 20.september kl 17:00 býður Stéttarfélag Vesturlands upp á kynningarfund um nýjan kjarasamning milli Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem skrifað var undir 12. september sl. Fundurinn verður haldinn í Alþýðuhúsinu og er möguleiki á að fá að vera í streymi. Þeir sem vilja fá að vera í streymi eru beðnir að senda tölvupóst á stettvest@stettvest.is Við hvetjum alla …
Kjarasamningur við sveitarfélögin 2023-2024 Kosning er hafin
18 aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands undirrituðu nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga þann 12. september. Samningurinn gildir frá 1. október 2023 til 31. mars 2024. Atkvæðagreiðsla hefst kl 12:00 þann 14.september – allar upplýsingar um samninginn má sjá hér Starfsfólk sveitarfélaganna kjósa hér Starfsfólk Brákarhlíðar kjósa hér
Breyttur opnunartími frá 1.september
Kæru félagsmenn Frá og með 1.september breytist opnunartími á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands og verður sem hér segir: mánudaga – fimmtudaga frá kl 8:00-16:00 föstudaga frá kl 8:00- 14:00
Könnun á vegum Símenntunar – endilega takið þátt :)
Kæru félagsmenn Símenntun á Vesturlandi áætlar að setja af stað frístunda- og starfsþróunarnámskeið í vetur. Til að framboð á námskeiðum verði í samræmi við óskir félagsfólks biðjum við félagsfólk að svara meðfylgjandi könnun. Könnunin er nafnlaus og hvetjum við alla til að taka þátt. Hér er könnunin á íslensku: https://forms.office.com/e/4DUSLwDZ5j Hér er könnunin á ensku: https://forms.office.com/e/knuiUsg7Tm Hér er könnunin á pólsku: https://forms.office.com/e/4DUSLwDZ5j
Félagsmannasjóður
1.september munum við greiða aftur út félagsmannasjóði til þeirra sem gleymdu að sækja um í febrúar. Allir félagsmenn sem störfuðu hjá sveitarfélagi á tímabilinu frá 1. febrúar 2021 til 31. desember 2022 áttu að fá greitt úr félagsmannasjóði 1. febrúar Sjóðurinn er 1,5% af heildarlaunum. Félagsmannasjóður vegna 2023 verður greiddur út 1.febrúar 2024 Til að hægt sé að tryggja að …
Ungt fólk í Stéttarfélagi Vesturlands
Ágætu félagar sem eruð yngri en 35 ára, ef þið hafið áhuga fyrir því að kynnast starfi ASÍ-ung, þá endilega hafið samband við félagið t.d. með því að senda póst á stettvest@stettvest.is Nú vantar okkur fulltrúa á þing ASÍ-ung. Áhugasamir hafið samband fyrir hádegi þann 28. júlí. Þingið verður 22. sept. nk. https://www.facebook.com/asi.unglidar/
Lokað vegna sumarleyfa 1.-4.ágúst 2023
Skrifstofa Stéttarfélags Vesturlands verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með 1.ágúst og til og með 4. ágúst. Opnað verður aftur kl. 08:00 þriðjudaginn 8.ágúst. Sjúkradagpeningar verða greiddir mánudaginn 31. júlí en öll vottorð og gögn vegna umsókna verða að berast í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 26. júlí. Styrkir úr Sjúkrasjóði, Fræðslusjóðum og Orlofssjóði voru greiddir 14.júlí og verða …