Langar þig í sumarbústað um helgina?

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Langar þig í bústað?Við vekjum athygli á því að laust er í Ölfusborgum um helgina og helgina á eftir – og Akureyri líka þarnæstu helgi … Til að panta er best að fara inn á orlofsvefinn okkar: http://orlof.is/stettvest/ Einfaldara getur það ekki verið 🙂    

Ársfundur Alþýðusambands Íslands 2016

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Ársfundur Alþýðusambands Íslands 2016 Fulltrúakjör                                                                                                             Samkv. lögum Stéttarfélags Vesturlands skal viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við val fulltrúa á ársfund ASÍ. Félagið á rétt til að senda 3 fulltrúa á fundinn, sem fram fer á Hilton Nordica hóteli í Reykjavík dagana 26., 27. og 28. okt. 2016.   Framboðslistum, þar sem tilgreindir eru 2 aðalfulltrúar frá SGS-deildunum og 1 frá LÍV-deild og …

Endilega kynnið ykkur breytingar á reglum um orlofshús

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

  1.     Frá 1. okt. er helgarleiga í öllum íbúðum og sumarhúsum félagsins tvær nætur, vilji félagsmaður nýta þrjár nætur er það greitt að fullu í samræmi við verðskrá.   2.     Hafi félagsmaður bókað og greitt fyrir íbúð með meira en tveggja mánaða fyrirvara og geti svo ekki nýtt sér leiguna, þá er honum endurgreitt að fullu óski hans þess …

Skipulögð vakt þarf að hafa upphafs- og endatíma!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þegar unnið er á skipulögðum vöktum í ferðaþjónustunni þarf að tilgreina upphaf vaktar t.d. kl. 15:00 og síðan hvenær henni ljúki t.d.  kl. 23:00. Hafi vaktin ekki tilgreindan endatíma er hún ekki fyrirfram skipulögð. Þurfi að lengja skipulagða vakt vegna t.d. tilfallandi verkefna, þarf að greiða sérstaklega fyrir lenginguna, það getur verið yfirvinna á yfirvinnutíma eða dagvinna á dagvinnutíma. Sem dæmi: …

Það gilda kjarasamningar fyrir verkafólk í landbúnaði!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands fær nær daglega fyrirspurnir frá einstaklingum sem starfa á félagssvæðinu og eru að spyrjast fyrir um réttindi sín. Allt of oft kemur í ljós að engum iðgjöldum er skilað til félagsins af viðkomandi. Þegar farið er að grenslast eftir því hver ástæðan er, eru svörin á ýmsa vegu frá launagreiðendum: Hann/hún bað ekki um að greiða í stéttarfélag“, eða“Ég er …

Mótframlag í lífeyrissjóði hækkar um 0,5%

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Samkomulag ASÍ og SA um hækkun á framlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóði Mótframlag hækkar um 3,5% í þremur áföngum til 2018 • 1. júlí 2016 hækkar mótframlag atvinnurekenda um 0,5% stig• 1. júlí 2017 hækkar mótframlag atvinnurekenda um 1,5% stig• 1. júlí 2018 hækkar mótframlag atvinnurekenda um 1,5% stig• Hækkun um 0,5% þann 1. júlí nk. mun renna í samtryggingu sjóðsfélaga• …

Íbúðin í Reykjavík laus næstu tvær helgar!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Íbúð félagsins að Ásholti 2 í Reykjavík er laus frá 25. júlí til 1. ágúst og svo aftur frá 3. ágúst til 10. ágúst. Íbúðin í Reykjavík er ekki í viku úthlutun eins og sumarhúsin og íbúðin á Akureyri yfir sumarið. Reglan sem gildir er fyrstur kemur fyrstur fær. Einu takmarkanirnar eru að helgin er leigð í einu lagi, þ.e. …

Skrifstofan lokuð eftir hádegi þriðjudaginn 19. júlí

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Vegna útfarar Agnars Ólafssonar verður skrifstofa Stéttarfélags Vesturlands lokuð frá hádegi þriðjudaginn 19. júlí.   Agnar Ólafsson var alla tíð virkur í starfi verkalýðshreyfingarinnar. Hann var 18 ára þegar hann var kosinn í húsbyggingarnefnd Verkalýðsfélags Borgarness. Frá þeim tíma, allt til dauðadags gengdi hann óslitið einhverjum trúnaðarstörfum fyrir verkalýðshreyfinguna. Agnar var í fjölda ára trúnaðarmaður á sínum vinnustað. Hann var …

Lokað í hádeginu næstu vikurnar vegna sumarleyfa

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Nú eru hafin sumarleyfi hjá starfsfólki Stéttarfélagsins því þarf að vera lokað í hádeginu næstu vikurnar.Mögulega gæti líka þurft að grípa til lokunar á öðrum tímum. Við biðjumst velvirðingar ef þetta veldur vandræðum en bendum einnig á netfangið okkar stettvest@stettvest.is og reynum að svara fyrirspurnum sem þangað berast eftir bestu getu.   Njótið sumarsins 🙂 Kveðja, Starfsfólk Stéttarfélags Vesturlands    

Aðalfundur félagsins verður haldinn 14.júní nk.

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

  Aðalfundur Stéttarfélags Vesturlands verður í Alþýðuhúsinu, Sæunnargötu 2 a, Borgarnesi þriðjudaginn 14. júní 2016, kl. 19:00   Dagskrá:   1.     Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt félagslögum 2.     Breytingar á lögum og reglugerðum 3.     Önnur mál     Þrír heppnir félagar úr hópi fundarmanna fá óvæntan glaðning.  Verður heppnin með þér í ár?   Glæsilegar veitingar.     Félagar: Sýnum samstöðu, fjölmennum …