Allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör stjórnar 2010

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Samkvæmt lögum Stéttarfélags Vesturlands ber að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar. Þetta ár ber að kjósa í stjórn sem hér segir: 
Til 2ja ára:   varaformann, vararitara og 2. meðstjórnanda.
 
Framboðslistum til stjórnarkjörs í Stéttarfélagi Vesturlands árið 2010, ásamt meðmælum a.m.k. 30 fullgildra félagsmanna, ber að skila til formanns kjörstjórnar, Sveins G. Hálfdánarsonar, Kveldúlfsgötu 16,  Borgarnesi, fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 6. apríl 2010.


Hvert það framboð er gilt sem fram kemur innan þess tíma og hefur skriflegt samþykki þeirra sem framboðslistann skipa.


Trúnaðarráð Stéttarfélags Vesturlands hefur ákveðið að leggja fram eftirfarandi lista vegna stjórnarkjörs 2010. –  Komi ekki fram fleiri listar teljast þeir sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir:


Varaform.: Sigurþór Ó. Ágústsson, Austurholti 3, 310 Borgarnesi, til 2ja ára
Vararitari: Kristján Jóhannsson, Gunnarsbraut 5, 370 Búðardal, til 2ja ára
2. meðstj.: Kristín Anna Kristjánsdóttir, Hamravík 8, 310 Borgarn., til 2ja ára



    Borgarnesi, 19. mars, 2010


    Kjörstjórn Stéttarfélags Vesturlands


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei