Dagana 5. og 6. nóvember nk. fer fram 12. þing ASÍ-UNG, ungliðarhreyfingar Alþýðusambands Íslands. Yfirskrift þingsins í ár er Hvað situr eftir? Kjör, skattar og framtíðartækifæri ungs fólks.
Stéttarfélag Vesturlands sendir tvo fulltrúa á þingið en það er ætlað launafólki á aldrinum 18-35 ára. Elín Ósk Sigurðardóttir félagi í StéttVest hefur setið í stjórn ASÍ-UNG sl ár fyrir hönd félagsins og situr hún þingið ásamt Arndísi Ingu Sveinsdóttur varaformanni iðnaðar-, mannvirkja-, og stóriðjudeildar StéttVest. Hlutverk ASÍ-UNG er að vera til staðar sem samstarfsvettvangur, álitsgjafi og umsagnaraðili um öll mál sem tengjast ungu fólki innan verkalýðshreyfingingarinnar. Sem og að standa vörð um hagsmuni ungs launafólks gagnvart stjórnvöldum og öðrum samtökum. ASÍ Ung fræðir og hvetur ungt fólk til þátttöku og áhrifa innan verkalýðshreyfingingarinnar með því að styðja við fræðslu og skapa vettvang fyrir ungt fólk til að kynnast og vinna saman innbyrðis, þvert á félög.
Þingið verður haldið á hótel Reykjavík Askja.

