Auglýst eftir framboðum til stjórnarkjörs

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Samkvæmt lögum Stéttarfélags Vesturlands ber að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar. Þetta ár ber að kjósa í stjórn sem hér segir: 
 
Til 2ja ára: varaformann, vararitara og 2. meðstjórnanda.
 
Framboðslistum til stjórnarkjörs í Stéttarfélagi Vesturlands árið 2012, ásamt meðmælum a.m.k. 30 fullgildra félagsmanna, ber að skila  á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands, Sæunnargötu 2a Borgarnesi, beint  til formanns kjörstjórnar, Guðrúnar Helgu Andrésdóttur, fyrir kl. 16:00 mánudaginn 12. mars. 2012.


Hvert það framboð er gilt sem fram kemur innan þess tíma og hefur skriflegt samþykki þeirra sem framboðslistann skipa.


Trúnaðarráð Stéttarfélags Vesturlands hefur ákveðið að leggja fram eftirfarandi lista vegna stjórnarkjörs 2012. –  Komi ekki fram fleiri listar teljast þeir sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir:


Varaform.: Sigurþór Ó. Ágústsson, Austurholti 3, 310 Borgarnesi, til 2ja ára
Vararitari: Kristján Jóhannsson, Gunnarsbraut 5, 370 Búðardal, til 2ja ára
2. meðstj.: Áslaug Þorvaldsdóttir, Berugötu 7, 310 Borgarnesi, til 2ja ára



    Borgarnesi, 23. febrúar, 2012


    Kjörstjórn Stéttarfélags Vesturlands
 


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei