Samkv. lögum Stéttarfélags Vesturlands skal viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við val fulltrúa á þing ASÍ. Félagið á rétt til að senda 3 fulltrúa á fundinn, sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu dagana 17. til 19. okt. 2012.
Framboðslistum, þar sem tilgreindir eru 2 aðalfulltrúar frá SGS-deildunum og 1 frá LÍV-deild og jafnmargir varafulltrúar, ásamt tilskyldum fjölda meðmæla fullgildra félagsmanna, skal skila á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands Sæunnargötu 2a, Borgarnesi, stílað á formann kjörstjórnar, Guðrúnu Helgu Andrésdóttur, fyrir kl. 16.00 mánudaginn 1. okt. 2012.
Borgarnesi, 24. sept. 2012
Stéttarfélag Vesturlands