Fundur ASÍ og Stéttarfélaga á Vesturlandi – 20. mars!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Kaupmáttur – atvinna – velferð!


Alþýðusamband Íslands boðar til fundar á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi, miðvikudaginn 20. mars kl. 19:30. Fundurinn er haldinn í samráði við stéttarfélögin á Vesturlandi. Um er að ræða einn af átta fundum, sem haldnir eru um land allt þessa dagana.


Fjallað verður um stöðu kjaramála og kaupmáttar (baráttu við verðbólguna), sókn í atvinnumálum á Vesturlandi og hugmyndir ASÍ að nýju húsnæðislánakerfi að danskri fyrirmynd.


 


Félögin hvetja launafólk til að mæta á fundinn.


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei